Sérverkefni, stór og smá

 

Undanfarin ár hefur Páll Guðmundsson tekið að sér gerð stærri verkefna fyrir sveitarfélög, fyrirtæki, félög og stofnanir. Bæði hefur verið um að ræða minnisvarða úr grjóti sem og verðlaunagripi og viðurkenningar af ýmsum toga, við ólík tækifæri.

Nokkur stærri verk:

Minnisvarði um Sigvalda Kaldalóns tónskáld sem sett var niður við Kaldalón í Ísafjarðardjúpi 1999. Verkið var unnið í Steinsmiðju Sigurðar Helgasonar í Reykjavík. Verkið vegur um 8 tonn.

Höggmynd af Freymóði Þorsteinssyni fyrrum bæjarfógeta í Vestmannaeyjum gerð árið 1999 sem liður í verkefninu Hraun og menn sem fram fór í Vestmannaeyjum.

Fyrir Vatnsveitu Vestmannaeyja vann Páll 16 tonna gabbróstein frá Hornafirði árið 2001. Verkið heitir "Samspil vatns og steins" og sýnir hönd sem heldur á Lunda og sem vatn flæðir um. Samhliða verkinu, einnig fyrir Vatnsveituna, vann Páll drykkjarfont úr steini sem barst á yfirborðið í Vestmannaeyjagosinu 1973.

Sem liður í verkefninu Sten og mennesker á Grænlandi 1994, gerði 3 höggmyndir sem prýða nágrenni bæjarins Quarqortoq.

Minnisvarði um Eggert Ólafsson og Ingibjörgu konu hans var reistur á Ingjaldshóli við Hellissand árið 1998.

Við Aðalstræti í Reykjavík gerði Páll minnisvarða um gamla kirkjugarðinn, árið 2000.

Árið 1997 gerði Páll höggmyndina "Kristnitakan" í Skálholti. Verkið sýnir hið kristna og heiðna.

1996 vann Páll fyrir Akraneskaupstað minnisvarða um Guðmund Jónsson forvígismann um skógrækt í bæjarfélaginu. Verkið var unnið í stein sem kom við gerð Hvalfjarðarganganna.Kaldalón

 

 

 

 

 

 

 

Verðlaunagripir

Meðal verðlaunagripa sem Páll hefur unnið má nefna menningarverðlaun Dagblaðsins árið 1996, Íslensku gæðaverðlaunin ári síðar auk fjölda annarra gripa af ýmsum toga og við ólík tækifæri.

 

Steinhörpur

Fyrir sýninguna í Ásmundarsafni (ársbyrjun 2001) gerði Páll sérstakt og nýtt hljóðfæri sem fékk nafnið Steinharpan. Verkið er safn steina úr ýmsum áttum sem raðað er á trjálurka og myndar hver steinn einn tón í þriggja og hálfrar áttundar hljóðfæri (slagverki). Við opnun sýningarinnar í Ásmundarsafni var frumflutt nýtt verk sem Áskell Másson tónskáld samdi fyrir Pál í tilefni sýningarinnar. Á hljóðfærið spiluðu Steef van Ooserhout og Herdís Jónsdóttir kona hans.